Hefur þig alltaf langað að læra D&D, en aldrei fengið tækifæri til þess?
Laugardagskvöldið 7. maí verður spilahittingur hjá Pírötum Í Goblin. Að því tilefni ætlum við að bjóða upp á Dungens & Dragons fyrir byrjendur. Spilað verður svokallað „Oneshot“ sem tekur um 1 klst. Sagan er ætluð þeim sem lítið eða ekkert hafa prófað leikinn.
Stefán Reykdal, vanur DM mun stjórna spilinu og kenna leikmönnum grunn atriðin.